Sagan okkar
Mjúkt, eins og nafnið segir.

MJÚK Iceland í dag
Í dag er MJÚK Iceland íslenskt framleiðslufyrirtæki með verksmiðju, tvö verkstæði, fjórar búðir og 30 manna teymi. Þetta byrjaði allt frá grunni.
Það tók okkur mörg ár að byggja upp framleiðsluna og enn erfiðara var að byggja upp teymi sem lætur sér jafn annt um það og við að viðskiptavinir séu ánægðir mörgum árum eftir að þeir kaupa eitthvað af okkur.
Við erum hvorki með magntilboð né árstíðabundna afslætti, af tveimur ástæðum: 1) MJÚK vill vinna heiðarlega og selja vel: við leggjum litla álagningu á vörurnar okkar til að bjóða öllum sem koma í búðirnar okkar besta mögulega verð, án brellna og sölubragða; 2) við viljum að þú kaupir aðeins það sem þú elskar virkilega og átt eftir að njóta í mörg ár. Það er betra fyrir þig og fer betur með náttúruna.
Árin 2024 og 2025 hlutum við viðurkenningar sem fyrirtæki ársins frá nýsköpunarráðherra og forseta Íslands. Við höldum áfram að vaxa jafnt og þétt og þróum nýja hönnun og jafnvel ný hráefni, eins og sérstöku Suri baby alpakkaullina okkar með silki. Sem fyrirtæki styðjum við íslensk og úkraínsk góðgerðarfélög, höldum menningarviðburði fyrir heimamenn og ferðamenn og gerum einfaldlega okkar besta til að vera góður framleiðandi og vinnuveitandi.
Við bjóðum þér að koma og skoða veggmyndirnar okkar. Aðalbúðin okkar á Laugavegi 23 er í sögufrægu húsi sem Guðjón Samúelsson teiknaði. Við höfum lokið gagngerri endurnýjun á öllu ytra byrði hússins og stækkað upprunalegu veggmyndina.
Teymið







Hönnuðurinn
Lífið er of stutt og of dýrmætt til að velja það sem „fellur að tískustraumum eða væntingum samfélagsins“ í stað þess sem gleður þig. Ég helga starf mitt því að hanna og framleiða mjúkar og notalegar flíkur í hundruðum lita og áferða, svo að þú finnir flíkina sem lætur þér líða virkilega vel. Hún gæti verið of loðin eða of rómantísk á litinn fyrir einhvern annan, en þér finnst hún einmitt rétt. Þegar viðskiptavinur grípur andann á lofti og segir „þetta er nákvæmlega húfan sem mig hefur alltaf dreymt um“, eða þegar þú kemur í búðina okkar og við þekkjum hönnun sem við framleiddum fyrir tíu árum – það eru þessar stundir sem gera starf mitt sem hönnuður að ástríðu.
Árið 1991 var ég lítil stelpa sem sat á teppastafla á meðan mamma og systir mín seldu hnetur úr garðinum okkar og súrar gúrkur í tuttugu stiga frosti, í stórborg í 2.000 km fjarlægð frá heimili okkar. Við bjuggum í Úkraínu og reyndum að komast af í efnahagsumrótinu á tíunda áratugnum. Við keyptum ullarteppi og mat úr heimabyggð og ókum með það til Samara, þar sem amma okkar bjó, til að selja það. Ástandið batnaði og versnaði á víxl: óðaverðbólga, rán og spilling eyðilögðu oftar en einu sinni allt sem við höfðum byggt upp, en alltaf byggðum við það upp aftur. Einu sinni þurftum við að selja íbúðina okkar og borðuðum ekkert nema skyndinúðlur í hálft ár, en við stóðum alltaf í skilum við starfsfólkið okkar og lánardrottna. Jafnvel á erfiðustu tímum fóru foreldrar okkar með okkur á öll söfn og í öll leikhús í Kænugarði til að efla menningarlegan þroska okkar. Þau trúa því að andlegur styrkur og trú á fegurð heimsins séu mikilvægasti hluti menntunar.
Mamma og systir mín byggðu fyrirtækið upp og ég var með þeim öllum stundum, þar til ég fór í háskóla og síðan að vinna hjá stórum alþjóðlegum fyrirtækjum. Ég vildi læra af þeim bestu og stærstu og geta fótað mig í þessum harða heimi. Ég lauk meistaragráðu í alþjóðlegri fjármálastjórnun og lærði hönnun og framleiðslu af eigin raun í verksmiðjunni. Frá tvítugu vann ég hjá PwC og síðan hjá risastórri glerframleiðslusamstæðu í Sviss. Það kenndi mér margt, og ég kom aftur inn í fjölskyldufyrirtækið með nokkrar róttækar hugmyndir: 1) að hætta að framleiða ódýrar vörur og snúa okkur að einstökum vörum í háum gæðaflokki; 2) að taka áhættuna og veðja öllu á útflutning til vesturs og norðurs. Þannig komum við fyrst til Íslands árið 2009. Fyrst mistókst það, en eftir margra ára vinnu tókst okkur að koma teppunum okkar og húfunum í sölu hér. Svo flutti ég hingað árið 2017 og þá fór allt að breytast fyrir alvöru. Við erum þakklát fyrir tækifærið til að búa og starfa í þessu fallega landi. Árið 2019 opnuðum við fyrstu búðina okkar, árið 2020 hófum við framleiðslu hér og árið 2022, þegar verksmiðjan okkar í Úkraínu var hernumin, jukum við framleiðsluna á Íslandi.
Aðalstarf mitt er að hanna og framleiða, en ég reyni líka að taka margar vaktir í búðunum, til að tala beint við viðskiptavini, skilja þig betur og bæta hönnunina mína stöðugt.
Knús,
Anna
Hönnuður og eigandi MJÚK Iceland